Að skella skolla

Sjálfstæðimenn hafa ekki tíma til að skoða orakir vandans sem við eigum við að gíma, þeir eru með allan hugan við afleiðingarnar. Skildi það verða þannig líka hjá þeim eftir næstu kosningar?

 

Í Alvöru talað!


Ef það reynist rétt ........

að Seðlabankinn hafi tapað tugum miljarða vegna þess að veð reyndist ekki rétt metið, þá verða menn að axla ábyrgð og segja af sér, allir sem einn. Svei þeim !

 

Í Alvöru talað!


mbl.is Lítill áhugi á kaupum á FIH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir grannar og vinir !

Þeir eru flottir Færeyingarnir ! Við munum ekki gleyma þessu.

 

Í Alvöru talað !


mbl.is Mikill drengskapur Færeyinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stýrivextir - ja hérna mig !

Hverjir sitja við stýrið? Ekki er öll vitleysan eins, nýbúið að lækka vextin um 3% stig og hækkað aftur um 6. Ef þetta væri í flugvél þyrftu farþegar að fá áfallahjálp. Ef þetta væri strætó þá eru einu skilaboðin: Viðræður við vagnstjóra í akstri eru stranglega bannaðar.

 

Í Alvöru talað!


mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær er tími til að taka poka sinn?

Þegar tapast hafa  miljarðar af eigið fé er þá ekki rétt fyrir stjórn og bankastjóra Seðlabankans að taka poka sinn?

 

Í Alvöru talað


mbl.is Lánaði ríflega 300 milljarða gegn veði í óvörðum verðbréfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brown er skoti, íslendingar eru and-skotar.

Það er andskoti aumt þegar fólk verður fyrir aðkasti, fyrir hluti sem þau höfðu ekkert með að gera. Megum reikna með fleiri svona uppákomum.

Í Alvöru talað!


mbl.is Óvelkomnar í gæludýraverslun í Glasgow
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað.

Sjálfsagt mál að kanna hvort Tjallinn hafi sökt flaggskipinu okkar. Það væri svo líkt þeim.

Í Alvöru talað!


mbl.is Ríkið íhugar að fara í mál vegna Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bauhaus hættir við

Þjóðverjar eru hræddir við að selja hryðjuverkamönnum vörur. Nota hins vegar það sem afsökun að efnahagsástandið hér sé eitthvað skrítið. Elskan, breski fjármálaráðherrann, hefur engan húmor fyrir gjaldþrotum. Hann hélt að við værum að gera grín af fylgishruni Verkamannaflokksins og værum með svona vinnustaðagrín.
Elskan, þú ættir að skammast þín, nú verð ég að hugga konuna mína sem er alveg miður sín yfir að Bauhaus séu hættir við.

Í Alvöru talað!


Þá er það ljóst.

Ég var ánægður með að Davíð talaði hreint út. Ekki stendur til að við þurfum að borga skuldir bankanna. Þetta skiptir öllu máli. Eigið fé verður flutt út til að ganga upp í kröfur, kröfuhafar fá 10-15% af kröfunum greiddar, og byrjað á núlli hér heima. Ríkið borgar sínar skuldir, en ekki annara.

Alvaran var ekki með í partíinu. Alvörunni var ekki boðið. Alvaran á ekki heldur að fá reikninginn fyrir veisluföngunum,

Í Alvöru talað!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur Þór Gunnarsson
Ólafur Þór Gunnarsson
Lætur það yfirleitt flakka
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband